RYÐVARNARÞJÓNUSTA
Fagleg ryðvörn fyrir íslenskar aðstæður.
Hvernig virkar ProLan ryðvörn á bílum?
Ryð myndast þegar málmur kemst í snertingu við raka og súrefni og salt flýtir verulega fyrir því ferli. Hér á Íslandi fá bifreiðar mikið á sig, salt, raka, hitabreytingar og sjávarloft, og því skiptir góð ryðvörn miklu máli ef halda á bifreiðinni í góðu ástandi til lengri tíma.
ProLan er lanólínbundin ryðvörn sem virkar öðruvísi en margar hefðbundnar ryðvarnir. Efnið smýgur inn í örholur málmsins, samskeyti, rifur og holrými og hrindir frá sér raka. Með því minnka þær aðstæður sem ryð þarf til að halda áfram að myndast.
ProLan harðnar ekki og myndar ekki lokaða skel utan um málminn. Efnið helst virkt og vinnur sig inn í samskeyti og önnur viðkvæm svæði. Það skiptir miklu máli þar sem ryð byrjar oft á stöðum sem sjást illa eða alls ekki við venjulega skoðun, til dæmis inni í holrýmum, við festingar og þar sem málmhlutar mætast. Bifreiðum er skilað á Suðurhellu 5. Þær eru keyrðar yfir á ryðvarnarverkstæðið á Suðurhellu 10 til þjónustu, en viðskiptavinir eiga ekki að koma á Suðurhellu 10.

AF HVERJU ÞARF BÍLLINN ÞINN RYÐVÖRN?
ALLT AÐ 5X HRAÐARI TÆRING ÁN VERNDAR
Íslenskar aðstæður auka hættu á ryðmyndun
Ryð hefur ekki bara áhrif á útlitið.
Ryðmyndun getur haft áhrif á öryggi, áreiðanleika og verðmæti bílsins þíns, sérstaklega þegar ryð nær til mikilvægra íhluta.
Afleiðingarnar geta meðal annars verið:
✓ Tæring á undirvagni og burðargrind
✓ Skemmdir á málmhlutum, festingum og öðrum íhlutum
✓ Aukinn viðhalds- og viðgerðarkostnaður
✓ Aukinn slysahætta ef ryð skemmir mikilvæga burðar- eða öryggishluti
✓ Minni áreiðanleiki til lengri tíma
✓ Lægra endursöluverð
✓ Styttri líftími ökutækisins
VERNDAÐU ÖRYGGI, VERÐMÆTI OG LÍFTÍMA BÍLSINS ÞÍNS



Af hverju PROLAN?

HVAÐ FELST Í ÞJÓNUSTUNNI?
Þetta er ekki einföld yfirúðun. Við fylgjum ítarlegu margþættu ferli til að tryggja raunverulega langtímavörn.

✓ Ítarleg skoðun og ástandsmat ökutækis
Við metum ryðið á ökutækinu, fyrri ryðvarnarmeðferðir og svæði sem eru sérstaklega viðkvæm fyrir tæringu.
✓ Undirbúningur fyrir hámarksvirkni
Ökutækið er þurrkað og hitað til að skapa kjöraðstæður fyrir ryðvarnarmeðferðina.
✓ Aðgangur að földum svæðum
Hjól, hlífar og aðrir íhlutir eru fjarlægðir eftir þörfum til að komast að viðkvæmum svæðum.
✓ Hreinsun með háþrýstilofti
Laust ryð, óhreinindi og raki eru fjarlægð eftir þörfum áður en meðferð hefst.
✓ Heildstæð PROLAN-ryðvarnarmeðferð
Við ryðverjum viðkvæm svæði, þar á meðal undirvagn, grind, sílsa, holrými, samskeyti, festingar og aðra málmhluta.
✓ Ljósmyndaskráning og ástandsskýrsla
Við skráum ástand ökutækisins og látum þig vita ef þörf er á frekari meðferð á ákveðnum svæðum.
✓ Öryggisskoðun og aksturspróf
Ökutækið er yfirfarið og akstursprófað fyrir afhendingu.
✓ Eftirfylgd innifalin
Fyrsta endurkoma og ástandsyfirferð eru innifalin í þjónustunni.
✓ Langtímavernd og reglulegt viðhald
Viðhaldsskoðanir eftir þörfum hjálpa til við að viðhalda ryðvörninni til lengri tíma.
✓ Ryðvörn fyrir fjölbreyttar gerðir ökutækja
Við ryðverjum fólksbíla, jeppa, ferðamannabifreiðar, rútur, þjónustubifreiðar, björgunarbíla, þungavinnubifreiðar og torfærutæki.
✓ Heiðarlegt ástandsmat – engin gjaldtaka ef meðferð hentar ekki
Ef ástand ökutækisins er orðið það slæmt að ryðvarnarmeðferð sé ekki skynsamleg, er ekki rukkað fyrir meðferðina.





























