top of page

ANDELI Moner sjálfdekkjandi suðuhjálmur með 4 LED ljósum – 180° sýn

Quantity

Sjálfdekkjandi suðuhjálmur frá ANDELI (Moner) með 180° víðsýni og innbyggðri LED lýsingu, sem gefur gott útsýni og bjart vinnusvæði hvort sem verið er að sjóða, skera eða slípa. Glerið er 3,94" × 3,74" (um 100 × 95 mm) og hliðargluggar auka yfirsýnina til hliðanna. Skelin er úr PE plasti.

Fjórir vandaðir ljósnemar greina suðubogann og glerið dökknar á 1/25.000 úr sekúndu, með 5 ms skiptitíma. True Color gler gefur skýra og raunsæja liti og UV/IR vörnin er DIN16. Seinkun (delay) er stiglaus frá 0,2 til 1,0 sekúndu. Þrjár stillingar: slípun, skurður og suða. Hentar meðal annars fyrir MIG og TIG suðu.

Fjögur LED ljós í tveimur ljósaröndum, allt að 400 lúmen, með þremur birtustigum. Ljósunum er stýrt með hnöppum ofan á hjálminum: löng ýting kveikir á ljósunum og stutt ýting skiptir um birtustig. Hlaðið í gegnum Type-C tengi og rafhlaðan endist í um 4,5 klst.

Í pakkanum: suðuhjálmur, 1 ytra hlífðargler, 1 innra hlífðargler, 2 líthíum rafhlöður og taska.

1 árs ábyrgð.

Sérkjör fyrir viðskiptavini í ryðvarnarþjónustu ProLan ehf. – Hjá Smára Hólm.

    ©2015–2026 by ProLan ehf. Ryðvarnarþjónusta - Hjá Smára Hólm

    bottom of page