Nátúruvæn Ryðvörn Hjá Smára Hólm
Í eftirfarandi texta má finna lýsingu á því hvað gert er þegar bíllinn kemur í ryðvörn hjá okkur.
Tekið er á móti bílnum daginn áður en vinna hefst við þá (fyrir kl 17:00).
*Ef að bílinn á tíma á mánudegi er hægt að koma með hann á sunnudegi og setja lyklana inn um bréfalúgu á hurðinni hjá okkur.*
Bílinn er settur inn eftir kl 17:00 og hann látin standa á upphituðu gólfi og hitablásaratil tl þurkunar yfir nóttina.
Dagur 1
Næsta dag eru bílarnir gerðir klárir á lyftur, hlífðarábreiður settar yfir þá og þeim lyft upp. Þá eru dekkin tekin undan ásamt því að plasthlífar í innri brettum að framan og aftan eru teknar úr til þess að sem greiðastur aðgangur verði að hjólaskálum (mikið um að bílar ryðgi einmitt þar). Allir tappar fyrir lokuð hólf eru teknir úr ( það sem þarf ) auk þess sem varadekk er þá einnig tekið af ef að það er undir bílnum og mögulegt er að losa það af.
Eftir þessa forvinnu er farið vandlega yfir alla helstu fleti með það í huga að hreinsa þá eins vel og hægt er en slíkt tryggir betri árangur fyrir efnið. Við hreinsunina er notast við öfluga loftbyssu sem blæs öllum sandi, ryðflögum og tektíl sem farin er að losna af, ásamt öðrum óhreinindum í burtu. Þær ryðflögur og óhreinindi sem eru of þykkar eða stórar fyrir loftbyssuna eru hreinsaðar með loftnálahamri eða öðrum viðeigandi áhöldum. Vönduð hreinsun er þannig eitt af helstu grundvallaratriðum þess að ryðvörnin verði árangursrík en með henni tryggjum við að efnið nái sem bestri viðloðun þegar það fer á.
Áður en sjálf efnismeðhöndlunin fer fram er hitastig á bílnum mælt. Ef að kjörhitastigi hefur verið náð hefst vinna við að koma ryðvarnarefninu vandlega undir bílinn. Sett er prolan heavy endura set á staði sem mikið mæðir á, t.d. járnhlifðarpönur hásinga og inn í hjólaskálar þar sem ekki eru hlífar til staðar sem verja innrabrettið fyrir ágangi.
Eftir þá vinnu sem nú hefur verið lýst hefst vinna við að sprauta ryðvarnarefninu (Prolan) vandlega undir bílinn. Efninu er þannig sprautað á allan undirvagnin og í hólf sem tappar voru etv. í,
Efnið líka sett inn í grindina og grindar bita sem eru undir gólfi bílsins.
Þegar búið er að sprautað undirvagn bílsins vandlega er hann látin standa í amk. 1-2 tíma meðan ryðið drekur PROLAN efnið í sig.
Nú hefur efnið náð að taka sig undir kjörhitastigi og aðstæðum. Farið er yfir allan bílinn og ath hvort að þörf sé á frekari sprautumeðferð á einhverjum flötum.
Að lokinni vandaðri lokaúttekt og frágangi er hafist handa við það að setja bílinn saman þar sem dekk og annað sem nauðsynlegt var að taka af vegna ryðvarnarmeðferðarinnar er sett á sinn stað.
Við þessa vinnu er efninu einnig úðað á felgur að utan og innan (ráðlagt er að leyfa efninu að vera á í nokkra daga áður en það er þrifið af ( á veturna er best að leyfa því að vera á )
Bílar sem verið hafa í ryðvarnar meðhöndlun hjá okkur eru síðan afhentir milli kl 16 og 17 á degi 2.
Efnið
Erfitt getur verið að segja til um nákvæman líftíma efnisins á bifreiðum þar sem notkun og aðstæður geta verið ólíkar milli einstakra bifreiða. Að þessu sögðu bjóðum við viðskiptavinum okkar ávallt að koma í gjaldfrjálsa skoðun 8 mánuðum eftir að ryðmeðferð hefur farið fram þar sem við förum yfir undirvagninn og bætum þá ryðvarnarefni við ef þarf á einhverja fleti. Að lokinni 8 mánaða skoðuninni mælumst við til þess að komið sé í skoðun með bílinn ári síðar. Við þá skoðun getum við síðan gert nánari áætlun um það í samráði við bifreiðaeiganda hversu langt má líða á milli skoðana ( oftast nær 1-5 ár).
Mög nauðinsleg er að koma í endur komu, til að hreinsa það sem losnar við PROLAN
Öll verð eru með endurkomu þar að seigja að koma aftur eftir 8 mánuði, förum við yfir bílinn og setjum Prolan í hurðar, húddið og hléran.
það sem er fram yfir það er auka. 1L kostar 5700.kr m/vsk og per timi er 15.000kr m/vsk
Viðmiðunarverð og Verðlisti fyrir bila
Grunveðverð er 98.000kr m/vsk
Hita þarf bílinn upp í 25c til að þurka hann áður það er birjað.
Sétja liftuarma á réttann stað undir bilinn áður en honum er lift upp 15 min
Plastfilmu yfir til að hún varni að prolan fari á bílinn 15 min
Taka dekk 4 x 7 Mínutur 20 min
Ef vara dekk er undir bíl,ef Leingri tími er notaður,reyknast það sem auka tími. 10 min
Plast úr bretum 4 x 15 mínutur 60 min
Plast kantar sem eru á brettum eru tekinigir af ef þörf þykkir gætti komið auka kostnaður vegna tappa og vinnu
Hlifar sem eru undir bilnum er misjarn tími frá 10 min upp í 45min stundum 20 min
Þrif á bínum með Háþristilofti er áættlað að vera 60 min 60 min
Tíminn við að setja prolan undir meðal bíl sem er undir 6 metra inni í því er 6 litra af prolan 60 min
Bíll sem er yfir 6 metra reiknast á hann auka lítrar. Líter kostar 5700kr + tímavinna 15.000kr
Samsetnig 60 min
Setja plast í hjólskálar og tilheirandi sétja dekk á bílinn 20min x 4stk 80 min
Plast og pönur undir bila 30 min
Taka fylmu af bíl 15 min
Taka arma undann liftu 10 min
Setjalimmiða í bil og keira ut 10 min
Frágángur og þrif 45 min
Samtals í min 455:60= 7,58 min 8 tímar
Með samstarfi við bílaleigu Akuureyrar getum við boðið upp á bílaleigubil

Höldur ehf - Bílaleiga Akureyrar
Europcar Franchisee Iceland
P.O. Box 10 IS-602 Akureyri, Iceland
Tel: +354 461 6035 • Mobile: +354 840 6035
Hérna eru verð í tvær stærðir. Innifalið eru 100,km, CDW kaskótrygging og vsk.
Flokkur A – VW Polo eða sambærilegur. 6820,kr á dag.
Flokkur C – Toyota Corolla eða sambærilegur. 8221,kr á dag.
Aðrir Bílar eru mun dýrari.
Leigutakar þurfa að hafa meðferðis ökuskírteini og kreditkort þegar bíllinn er tekinn. Fá hann fullan af eldsneyti og skila aftur fullum.
Við getum sótt leigutaka til ykkar og skutlað þeim til baka að leigu lokinni.
Við erum staðsett í Drangahrauni 3 og síminn þar er 565-3800
María sem er hérna í cc er stöðvarstjórinn okkar í Hafnarfirði